Heitir Pottar - Villuboð á stjórnborði
Sumir heitir pottar (en því miður ekki allir) geta birt villuboð (e. error code) á skjánum á stjórnborðinu. Þessi villuboð eða bilanakóði segir okkur hvað er að hverju sinni og oft þarf ekki mikið til að laga hlutina, en stundum er þetta kall eftir þjónustu eða viðgerð.
Til að auðvelda notendum að ráða í bilanakóða og sjá hvort villa er alvarlegs eðlis hef ég safnað saman villuboðum í nokkrum algengum stýrikerfum.
Applied Computer Controls
- CoLd : Hitastig í hitara er undir 5°C, hringrásardæla keyrir stöðugt þar til hitastig nær 7°C
- OH : Yfirhiti. Vatnshiti yfir 42°C
- HLoH : Hámark yfirhita. Yfirhitaskynjari aftengdur, skammhleyptur eða hitastig yfir 44°C
- SEoP : Skynjari rofinn eða aftengdur. Hitari óvirkur en pottur virkur
- SESH : Skynjari skammhleyptur eða óvirkur. Hitari óvirkur en pottur virkur
- PSoC : Þrýstirofi opinn með hringrásardælu
- PSoL : Þrýstirofi opinn með minni hraða
- PSoH : Þrýstirofi opinn með meiri hraða
- ToE : Time out error. Sjaldgæf villa, hafið samband við viðgerðarmann
Balboa stýrikerfi
- pd : Rafmagn farið af, stýringin gengur á rafhlöðu
- OH : Yfirhiti, vatnshiti yfir 45°C
- OHH : Yfirhiti, pottur hefur slökkt á sér. Vatnshiti yfir 48°C
- OHS : Yfirhiti, pottur hefur slökkt á sér. Vatnshiti yfir 43°C
- Flo : Flæði eða þrýstiskynjari óvirkur
- Cool : Vatnshiti 12°C undir kjörgildi
- ICE : Frosthætta
- Sn1 : Bilaður yfirhitaskynjari
- Sn3 : Bilaður rekstrarhitaskynjari
- Sna : Pottur hefur slökkt á sér. Skynjari í tengi A er bilaður
- Snb : Pottur hefur slökkt á sér. Skynjari í tengi B er bilaður
- SnS : Skynjurum ber ekki saman. Ef hiti er að breytast, getur ástandið verið eðlilegt. Ef þessi skilaboð blikka þá hefur potturinn slökkt á sér
- HFL : Mikill munur á hita milli skynjara. Gæti þýtt stíflaða síu
- LF : Viðvarandi flæðivandamál (5. HFL villa innan 24 tíma). Hitun hættir, en dælur virka
- dr : Of lítið vatn í hitara
- dry : Of lítið vatn í hitara (3ja dr villa í röð). Pottur slekkur á sér
- Pr : Þegar kveikt er á potti í fyrsta skipti fer hann sjálfkrafa í Priming Mode
- ILOC : Interlock failure
- --- : Vatnshiti ekki þekktur. Kemur eftir að nýtt vatn hefur verið sett í
- Std : Pottur gengur í Standard ham
- Ecn : Pottur gengur í Sparnaðar ham
- SE : Pottur gengur í Standard-Sparnaðar ham
- ILOC : Interlock failure - possible pump or ozone spike
Coast Spa
- Ekkert á skjá : Potturinn er straumlaus, en stillingar halda sér eftir endurræsingu
- -- : Vatnshiti ekki þekktur. Eftir að dælur hafa keyrt í um tvær mínútur mun hitastig birtast
- HH : Yfirhiti, slökkt á potti. Vatnshiti í hitara yfir 47,8°C
- OH : Yfirhiti, slökkt á potti. Vatnshiti í potti yfir 43,5°C
- SA : Pottur hefur slökkt á sér. Skynjari í tengi A er bilaður
- Sb : Pottur hefur slökkt á sér. Skynjari í tengi B er bilaður
- Sn : Skynjurum ber ekki saman. Ef hiti er að breytast, getur ástandið verið eðlilegt. Ef þessi skilaboð blikka þá hefur potturinn slökkt á sér
- HL : Mikill munur á hitaskynjurum. Gæti bent til tregðu í vatnsstreymi
- LF : Viðvarandi HL villa. Birtist við fimmtu "HL" villu á einum sólarhring og hitari verður óvirkur
- dr : Of lítið vatn í hitara, lélegt flæði eða loft í hitara. Potturinn slekkur á sér í 15 mín
- dy : Of lítið vatn í hitara. Birtist við þriðju "dr" villu, pottur slekkur á sér
- IC : Frosthætta
Hydropool
- dr : Of lítið vatn í hitara
- dry : Of lítið vatn í hitara (3ja dr villa í röð). Pottur slekkur á sér
- Pr : Þegar kveikt er á potti í fyrsta skipti fer hann sjálfkrafa í Priming Mode
- Std : Pottur gengur í Standard ham
- Ecn : Pottur gengur í Sparnaðar ham
- SE : Pottur gengur í Standard-Sparnaðar ham
- SLP : Pottur gengur í SLEEP ham
- COOL : Vatnshiti meira en 7°C undir kjörgildi
- ICE : Frosthætta
- --- : Vatnshiti ekki þekktur. Kemur eftir að nýtt vatn hefur verið sett í
- Sn1 : Bilaður yfirhitaskynjari
- Sn3 : Bilaður rekstrarhitaskynjari
- Sna : Pottur hefur slökkt á sér. Skynjari í tengi A er bilaður
- Snb : Pottur hefur slökkt á sér. Skynjari í tengi B er bilaður
- SnS : Skynjurum ber ekki saman. Ef hiti er að breytast, getur ástandið verið eðlilegt. Ef þessi skilaboð blikka þá hefur potturinn slökkt á sér
Sundance Spa
- ILOC : Interlock failure - possible pump or ozone spike
- FLO : Bilun í þrýsti-/flæðirofa
- Hold : Of ört slegið á hnappa á stjórnborði eða marga í einu
- HOT : Stýring óeðlilega heit
- ICE : Frosthætta
- Pnl : Samskipti milli stýringar og stjórnborðs í ólagi
- Sn1 : Yfirhitaskynjari bilaður
- Sn3 : Hitaskynjari fyrir rekstur bilaður
- --- : Pottur er óvirkur, sennilega bilaður hitaskynjari
Nánari upplýsingar veitir Björgvin í GSM síma 897-3258,
kvöld og helgarþjónusta