Áður en heitur pottur er settur niður, þarf að huga að undirstöðu hans gaumgæfilega. Undirlag þarf að vera alveg slétt, svo að ekki komi vindingur á pottinn sem getur leitt til þess að skelin springi eða röralögn aflagist. Best er að setja heita potta niður á steypta undirstöðu, en ef þeir eru settir niður á pall eða möl þarf að hugsa fyrir burðarþoli undirstöðunnar.
Algengt er að pottarnir séu 200 - 500 kg tómir og séu ætlaðir fyrir um 1200 til 2000 ltr af vatni auk 5 til 7 manns. Niðurstaðan er oftast sú að burðarþol þarf að vera að minnsta kosti 500 kg á fermetra. Stór pottur sem þekur um 5 fermetra, vegur fulllestaður a.m.k. 2 og hálft tonn.
Undirstaða úr möl þarf að vera vel þjöppuð og hæfilega sigin áður en potturinn kemur, og ef undirstaðan er pallur þarf að ráðfæra sig við húsasmið eða tæknifræðing um burðarþol áður en potturinn er tekinn heim. Sérstaklega þarf að athuga að undirstaða undir pott er alltaf á ábyrgð eiganda og getur ekki fallið undir ábyrgð seljanda.