Heitir pottar - Þjónusta

Heitir Pottar - Óson og ósontæki

Hvað gerir ósontæki í heitum potti?

Ósontæki er hluti af hreinsibúnaði í nýrri gerðum nuddpotta og er öflugt og ómissandi hjápartæki til að sótthreinsa og halda vatninu tæru og hreinu. Ósonið drepur bakteríur og hindrar myndun þörunga og útfellinga í pottinum.

Hvað er óson?

Óson er lofttegund sem samanstendur af þremur súrefnis atómum í stað tveggja í venjulegu súrefni andrúmsloftsins. Óson verður til þegar venjulegt súrefni verður fyrir útfjólublárri geislun sólarljóssins eða við rafúrhleðslu í þrumuveðri. Óson má framleiða á sambærilegan hátt með þar til gerðum tækjum.

Framleiðsla ósons

Hvað gerir óson í heitum potti?

Óson er mjög öflugt hreinsiefni sem að drepur bakteríur, veirur og þörunga ásamt því að brjóta niður uppsafnað klór og önnur óæskileg efni svo sem sólkrem, snyrtivörur og annað sem fólk ber með sér í pottana.

Óson er mjög óstöðugt efni sem umsvifalaust leitast við að brotna niður í venjulega súrefnissameind og laust atóm sem sækist á ofsafenginn hátt í að bindast öðrum sameindum með oxun og eyðir þannig örverum, fitu og lykt án þess að skilja eftir sig önnur efni en vatn, súrefni og koltvísýring.

Hættur við notkun ósons

Þó svo að óson rjúki fljótt upp í andrúmsloftið úr opnum potti utanhúss, þá getur það safnast saman undir loki pottsins og valdið óþægindum ef því er andað að sér.

Óson veldur ertingu í öndunarfærum og því verður að sjá til þess að garðskálar og önnur lokuð rými utan um heita potta séu vel loftræst.

Heimild

Nánari upplýsingar veitir Björgvin í GSM síma 897-3258
Kvöld og helgarþjónusta
Fréttabréf
Skráðu þig og fáðu nýjustu upplýsingar
Nafn:
Netfang: