Heitir pottar - Þjónusta

Almennt um heita potta

Snorralaug

Heitar baðlaugar hafa verið til um aldir og þekktust er kannski laug Snorra í Reykholti. Í dag er heitur pottur samheiti yfir utanhúss baðstaði sem spanna allt frá einfaldri plastskel sem heitt vatn er látið renna í og upp í rafmagns hitaða potta sem eru til reiðu allt árið.

Rafhituðu pottarnir hafa orðið vinsælastir vegna þeirra kosta að vera tilbúnir þegar á þarf að halda, auk þess að bjóða upp á öflugt vatns- og loftnudd og bjóða upp á ýmiskonar aukabúnað.

Einfaldasta plastskelin er í raun bara utanhúss baðkar. Hún er lítil, það þarf að láta renna í hana heitt vatn og tæma eftir notkun og hún er ekki búin nuddi. Athugið samt að allir þurfa að baða sig áður en farið er í skelina og gæta verður fyllsta hreinlætis við umgengni um hana.

Næsti möguleiki er að kaupa plastskel með vatnsnuddi. Þá er um að ræða 4ra manna pott án vatnshitara, en í honum eru dælur og stútar fyrir vatnsnudd og hann þarf að tengja við rafmagn svo að dælurnar virki.

Báðar þessar skeljar henta vel fyrir hitaveituvatn og hægt er að fá mjög góðan og stöðugan stýribúnað fyrir hitaveitukynnta potta sem tryggir einfalda og örugga notkun þeirra án þess að notandinn þurfi að stilla blöndunartæki eða mæla hita.

Rafhitaður pottur er vinsælasti kosturinn, en um leið sá dýrasti. Þennan pott má nota allt árið um kring og hann er alltaf tilbúinn þegar á þarf að halda. Hann er hitaður með rafmagni og er stilltur á það hitastig sem óskað er, allt að 42°C auk þess að vera búinn nudddælum og tilheyrandi búnaði fyrir allt að 6 - 8 manns.

Helstu vörumerki:

Artic Spa
Sundance Spa
Coast spas
Caldera Spas
Vita Spa
Hydropool
Winer
Sun Ray
Jazzi
Monalisa
Coasts (Kína)


Nánari upplýsingar veitir Björgvin í GSM síma 897-3258
eftir kl 17 á virkum dögum, eftir hádegi um helgar

Fréttabréf
Skráðu þig og fáðu nýjustu upplýsingar
Nafn:
Netfang: