![]() |
Geri við og þjónusta nuddpotta og aðra heita potta á Akureyri og í nærsveitum. Útvega varahluti í margar gerðir potta.
Tek að mér að þjónusta nánast allar gerðir heitra potta og nuddpotta, innlenda og erlenda. Rafkerfi, dælur, vatnskerfi og stýribúnaður. Varahluti sem ekki eru til á landinu er að jafnaði hægt að útvega á fáeinum dögum.
Hvað er notalegra en að liggja í heitum potti eftir vinnu eða í frítíma og láta vatnsnuddið berja á stífum vöðvum eða bara nudda kroppinn mjúklega?
Heiti potturinn þinn er mikil fjárfesting sem þarf að endast í mörg ár, en hann gerir það ekki nema hann fái sitt viðhald og þjónustu. Til þess að fá heita pottinn til að verða þér til gleði og yndisauka, þarftu að fylgjast með gæðum vatnsins og starfsemi búnaðarins sem dælir vatninu um stúta pottsins, sem svo gefur þér slakandi nudd og vellíðan.
þetta er ekki mikið starf af þinni hálfu. Þú þarft aðeins að mæla vatnsgæðin reglulega og bæta í pottinn réttum efnum eftir þörfum. Ef stjórnbúnaðurinn eða hitastillingin hins vegar bila, þarftu á fagmanni að halda sem getur komið hlutunum í rétt horf aftur.